Þá er komið að því*Karen Sveinsdóttir
Mallorca here I come!!!
Nú rétt eftir svona klukkara eða svo leggjum við Ásþór í hann til Reykjavíkur. Planið er að fara heim til Ragnheiðar í kvöld, panta pizzu og horfa á RockStar Supernova meða hún hendir á mig nöglum!:)
Svo gistum við þar:) Kósí kvöld í kvöld.
*Hlakka til að sjá þig ljúfan*
En svo í fyrramálið þurfum við að fara á Heimsferdir og ná í miðana okkar og bruna svo út á völl, held að flugið okkar sé um hálf 2. Held að málið sé bara að koma nógu snemma á völlinn, kaupa sér bjór og slaka á!:) Svo bara fljúga beinustu leið til Mallorca.... eða ekki beinustu leið, þurfum víst að millilenda á Alicante. En það er allt í lagi:)

Já, ég hreinlega get ekki beið... það var svo gaman í fyrra og ég vona að í þetta skipti verði eins gaman, og efast ekki um það:)
En ég ætla þá bara að kveðja í bili:)
Adios
*Karen*
Karen Sveinsdóttir
Mánudagur í dag og helgin ný búin. Þetta var fyrsta fríhelgin mín síðan í maí og ég vissi eiginlega ekkert hvað ég átti að gera. En ég fór til Húsavíkur á föstudaginn eftir skóla og við Ásþór vorum bara að slappa af og svona, hitti Rebekku sem var alveg magnað, hef ekki hitt hana síðan í maí og bumban var nú búin að stækka talsvert:) Alveg magnað:)
Svo var nú planið að fara í útilegu á laugardeginum en ég fór til Akureyrar því mamma átti afmæli þá.
Til hamingju með það mamma mín*
Svo um kvöldið var bara haft það rólegt heima, leigt spólu og pantað pizzu og svona.
En eins og ég sagði áðan þá er mánudagur í dag. Styttist og styttist í að ég fari út og eru bara 3 dagar í það núna:) Förum á suður á miðvikudaginn og svo út á fimmtudaginn og ég verð nú bara að segja að ég get ekki beðið.... þetta verður alveg magnað!
Reyndar missi ég alveg viku af skólanum en það þýðir bara að maður verður að vera duglegur og svona. Þýðir ekki annað....
en meira verður þetta ekki í bili...
*Karen*
CRAP!!!!!Karen Sveinsdóttir
Ég held að pirringurinn í mér núna sé að ná sögulegu hámarki! Það er vika í að ég legg í hann suður til að fara út og ég finn ekki fokkin vegabréfið mitt! Og ég held að eftir daginn í dag ef ekki bara með deginum í dag sé of seint að sækja um nýtt nema eitthvað svona bráðadæmi og það er bara ekkert grín hvað það er dýrt! Ég er búin að rústa öllu hérna heima og finn það ekki, pottþétt að ég finni það um leið og ég kem heim eftir að hafa sótt nýtt! Ég er sko engan vegin að nenna þessu núna sko!!!
Crap it! En ég held ég drífi mig bara niðureftir núna og sæki bara um nýtt, so be it ef ég finn hitt svo!
Skólinn var svo stuttur í dag, frí í síðustu tveim tímunum, það var magnað, svo þarf ég ekkert að mæta á morgun því það er busun og svona.
Svo um helgina held ég að stefnan sé að fara til Húsavíkur og svo kannski á laugardaginn í Flateyjardal.
Svo styttist bara í það að ég bruni suður, Ragnheiður, ég treysti á að þú verðir búin að búa um okkur og svona og tilbúin með naglasettið þegar ég kem!:) Hehe... segi svona... en ég væri mjög þakklát allavega ef þú gæfir þér tíma í að græja mig aðeins:) Svo gerum við eitthvað skemmtilegt:) Hlakka til að sjá þig ljúfan!:)
En meira verður þetta ekki í bili, því ég þarf að fara að ræða við vinkonu mína á sýsluskrifstofunni....
over and out
K.S
Þá er það búið...Karen Sveinsdóttir
... og það næsta tekur við! Ég var að koma úr vinnunni núna, mótið var að enda og var það alveg magnað. Hún Sunna Sævars okkar frá GA vann þar ferð til Ameríku og er einnig nýlega búin að vinna ferð til Barcelona að mig minnir. Marg borgar sig að vera góður golfari!
Já í gær eftir góða 10 tíma vakt (5-15) skrapp ég til Húsavíkur. Ég og Ásþór ætluðum nú að fara á ball með Ínu og Hljómsveit og kíktum til Agnesar og byrjuðum þar aðeins að sötra. Svo var ég nú orðin svolítið þreytt svona um 11 leitið, enda bara búin að vera vakandi í 19 tíma, og bað Ásþór að labba með mér heim því ég ætlaði bara að fara að sofa. En svo þegar við komum heim lögðumst við bæði upp í rúm bara í fötunum og svona og steinsofnuðum. Svo vaknaði ég um tvö leitið og spurði Ásþór hvort hann ætlaði ekki að kíkka út en það var víst ekki. Ný kominn heim af sjó og greinilega ekki búinn að sofa nóg!
Svo í morgun vaknaði ég svona um 10 leitið. Brunaði svo til Akureyrar svolítið seinna og beint í vinnuna. Svo lokuðum við bara klukkan hálf 9 þegar mótið var búið. Og þetta var síðasta vaktin mín og nú er ég bara búin!:)
Þetta er búið að vera hið ágætasta sumar. Reyndar alveg hellings nóg að gera, segir sig svo sem alveg sjálft því ég fékk nú ekki eitt einasta helgarfrí í allt sumar. En það hefur alveg sagt til sín á laununum og ekki ætla ég að kvarta undan því!:)
En nú er það bara skólinn sem tekur við... og vonandi önnur vinna!:) Maður þarf víst að lifa á einhverju!
ekki meira í bili...
kv.
*karen*
....Karen Sveinsdóttir
Já, núna er skólinn byrjarður og það er bara fínt. Ég er í 22 einingum og það er bara alveg ágætt, reyndar í tveim sálfræðiáföngum, en það verður allt í góðu, held það bara:)
Svo er þetta síðasta vinnu helgin mín, mætti reyndar klukkan 5 í morgun og var svona frekar mygluð þegar klukkan hringdi klukkan 4 í nótt. Var svo líka að vinna til hálf 11 í gærkvöld. En ég er búin í dag og ætla að skella mér til Húsavíkur og kem svo aftur í fyrramálið því það er vinna klukkan 12.
En svo styttist og styttist í Mallorca og ég hreinlega get ekki beðið!! 12 dagar!!! Kemur allt saman!
En jæja, ég hef eiginlega ekkert að segja... er farin til Húsavíkur
kv.
Karen
Snilld!Karen Sveinsdóttir
Þá er þessi helgi loksins búin! Það var alveg vel nóg að gera! Enda er ég alveg búin núna, fór nefnilega vaktina fyrir Huggu í dag og þurfti því að vakna snemma, en ég get sofið út á morgun sem verður meira en nice!
En svo hringdi Ásþór í mig í dag í gegnum gervihnattasímann, því kallinn er nú ekki í alvöru símasambandi þarna úti á hafi, og sagði mér að breyta ferðinni, hann yrði nú líklegast kominn í land fyrir 31. ágúst. Ég hringi í Heimsferðir og tala við konuna sem gaf mér frest þar til í dag og hún var alveg miður sín og sagðist ekki geta breytt ferðinni því það væri búið að gefa út miðana eða hvað sem hún nú sagði. Skiptir ekki, en bauð mér betra hótel í staðin á sama verði. Ekki stúdíóíbúð eins og við áttum að vera í heldur almennilegri íbúð með einu góðu svefnherbergi og svona. Og vini menn. Hún bauð mér að fara á Fontanellas!!!:)
Sem er einmitt hótelið sem ég var á í fyrra sumar og ég var því ekki lengi að segja já því mér fannst það alveg magnað!:)
Ég er svo happy núna!! Hlakka svo til!! Líka því ég og Ásþór gerum aldrei neitt eða förum aldrei neitt bara tvö, eftir þrjú ár er alveg kominn tími á það sko!:) Og hlakka svo bara til að fá drenginn í land!
Hef ekki séð hann síðan fyrir versló, og þetta er að verða komið gott sko!:)
En jæja, lengra verður þetta ekki í bili!:)
*Karen* - OFURspennt að komast út!:*
Sumarið alveg að enda...Karen Sveinsdóttir
Mótið byrjar á morgun. Ég sem betur fer fékk leifi til að skreppa frá á laugardaginn en þá er hún Kidda að fara að skíra litlu prinsessuna sína og ég verð að segja að ég hlakka rosalega til að sjá hana, hef ekki séð hana ennþá. Og svo verður gaman að vita hvað þessi litli engill á nú að heita!:)
Svo í næstu viku byrjar skólinn og þá svona næstum því hætti ég í vinnunni. Eftir miðvikudag allaveg tek ég bara kvöldvaktirnar mínar og svo vinn ég auðvitað um helgina þá því þá er risamót, Mitsubishi Open! Það verður rosalegt. En fínt að enda þetta með stæl!
Sumarið hefur nú verið samt fínt þrátt fyrir mikla vinnu. Búin að fara í þrjár fínar útilegur, mjög stuttar samt því maður hefur verið að vinna. Fór eina með Krissu, Ásrúnu og Ragga, svo eina með Ásþóri, Leif og Ásrúnu og svo fór ég í eina til Húsavíkur með Kolbrúnu og Ragúel. Fórum á bílnum hennar til Húsavíkur og ætluðum að taka tjaldvagninn minn sem er þar, en þegar við komum á víkina föttuðum við að það var ekki krókur á bílnum þannig ég hringdi bara í Róbert og hann kom og dró vagninn fyrir okkur á tjaldsvæðið og svo kom tengdapabbi og tjaldaði fyrir okkur og hafði svo voðalega áhyggjur að okkur að hann sagði sífellt að það væri svo alltaf opið hús ef okkur yrði nú kalt!

Ragúel fannst þetta ekki smá gaman og ég hef eiginlega aldrei vitað svona þakklátt barn yfir útilegu! Hehe


Voðalega lík mæðgin eitthvað.

Og svo get ég nú ekki farið í útilegu nema fá mér nokkra gula! Það er sko alveg á hreinu!
Svo núna síðustu helgi var þetta blessaða staffadjamm sem hefur verið á döfinni í allt sumar. Við fengum 4 bjórkassa gefins og svo vorum við með opal flöskur og svona. Grilluðum kjúlla og það var bara gott sko! Svo var einhver ratleikur og við vorum þarna öll hlaupandi um golfvöllinn í myrkrinu og það var alveg magnað.

Hérna erum við Hilla alveg búnar með smá!!

Herdís og Hugga svo hérna helvíti hressar... og eins og sjá má var ullarpeysuþema!
En svo eins og ég hef nú komið inn á áður er ég að fara út og það styttist og styttist. Ég hef frest fram á mánudag að breyta ferðinni og ef Ásþór telur það líklegt að hann verði kominn í land fyrir mánaðamót ætla ég að breyta henni frá 7. september til 31. ágúst.

Þá verður sko farið aftur í þessa... það var snilld!!!

Og svo að sjálfsögðu ætla ég að sýna Ásþóri Drekahellana, án efa það fallegasta og flottasta sem ég hef séð!
En jæja, þetta er komið meira en gott í bili.
-- Góða nótt --
*Karen*
Brjálað að gera !!!Karen Sveinsdóttir
Alveg klárlega ekki minn dagur í dag!
Fór í vinnuna klukkan 10 í morgun, fárveik eiginlega en við erum svo fáar að vinna þarna að ég gat ekki annað en mætt. Hugga í fríi og mót í gangi og svona.
En ég slapp svo loksins um 7 í kvöld og þá tók við að læra. Tvö próf á morgun, sjúkrapróf og ég vona að þau gangi ágætlega. Finnst svo hrikalega erfitt að vera í fjarnámi! Fyrir það fyrsta þá skil ég ekkert í þessu webct forriti og svo finnst mér erfiðara að læra svona án kennara. En vonandi reddast þetta allt saman.
Maður er búinn að vera ekkert smá bissí í allt sumar, búinn að vinna eins og mófó og reyndar sést það alveg á laununum, hef aldrei átt svona mikinn pening.
Ég reyndar hætti eftir svona rúmlega 2 vikur. Og á þessum tveim vikum eru tvö stór mót og það verður sko nóg að gera. Hlakka ekkert smá til að hætta og fara til Mallorca með Ásþóri!:)
![]()
... og nú heldur maður áfram að læra....
kv.
Karen - á leiðinni í sólina
Mallorca baby!!!Karen Sveinsdóttir
Djöfull er á happy núna. Búin að fá Ásþór til að fallast á það að fara til Mallorca!:) Annað hvort er það 31. ágúst - 7. september eða 7. september - 14. september!:):) Býð bara eftir að Ásþór hringi í mig eða sendi mér póst til að segja mér hvor tíminn hentar honum betur! Og þá er ekkert eftir en að bóka!:) Djöfull hlakka ég til!!!
Hérna var ég í fyrra, á Fontanellas Playa og það var bara snilld. Förum reyndar ekki á þetta hótel núna en hótel sem er bara tvem eða þrem hótelum frá.
Get ekki beðið sko!
En Ragnheiður mín, út af því að ég er að fara þarna út er ég að spá í að vera bara heima næstu helgi og vinna. En við kíkjum pottþétt á þig þegar við förum út elskan!:) takk samt fyrir magnað boð!:)
Meira verður þetta ekki í bili
kveðja
Karen
Versló 2006Karen Sveinsdóttir
Það má segja að þessi verslunarmannahelgi fór öðruvísi fram en þær hafa áður gert. Ég var að vinna, aldrei áður hef ég verið að vinna yfir versló.
Fimmtudagskvöldið fór ég til Húsavíkur því hann Ásþór var að koma í land. Daginn eftir brunuðum við til akureyra. Ásþór vildi endilega fá mig með í þessa kúlu sem var í tívólíinu en ég þorði ekki, hann ætlaði meira að segja að borga fyrir mig. Hélt nú ekki þannig Leifur fór með honum. Svo fór ég að vinna klukkan 4. Þá hringdi Ásþór og sagði að hann væri að fara á sjó í fyrramálið aftur. Ég vann til 9 og kíkti svo til Leifs með Ásþóri þar sem var eitthvað gott lið að fá sér í glas. Við skelltum okkur aðeins í bæinn og ég að keyra. Fólk var ekki alveg að átta sig á því. Ekki mjög vanalegt hjá mér. En við Ásþór vorum bara stutt úti, þurftum bæði að vakna svo snemma, ég fór að vinna klukkan átta.
Þegar ég var búiin fór ég í grillveislu til Soffíu frænku sem var meget fínt. Ætlaði svo voðalega snemma að sofa en ég gat engan vegin sofnaði. Líklegast því ég vissi að ég ætti að vakna klukkan 4 til að mæta í vinnu um 5 á sunnudagsmorgun. Þannig ég náði 2 tíma svefn!
Þegar ég var á leiðinni í vinnuna ákvað ég að keyra fram hjá bænum og hann var alveg troðin, fólk ennþá að djamma.
klukkan þrjú, þegar ég var búin að vinna í 10 tíma fékk ég að fara aðeins heim og hvíla mig í svona 2-3 tíma, ætlaði aldeilis að sofna en það gekk ekki. Mætti svo aftur og var að vinna til 10.
Eftir það ætlaði ég að hitta Hillu og kannski Grétu frænku, ákvað að fara fyrst með Huggu á Amour og fá okkur einn bjór þar. Svo fór ég bara til Ásrúnar og ætlaði með henni og Áslaugu í bæinn en ég var orðin svo þreytt að ég fór bara heim. Sofnaði í rauða fína stólnum mínum um leið og ég kom heim.
Gærdagurinn var svo alveg með því óvenjulegasta sniði. Við familían vorum að gera eitthvað saman. Það hefur eiginlega aldrei gerst. Við fórum öll, sem sagt, ég, pétur, kolbrúm, ragúel, hanna dröfn, mamma og pabbi í tívólíið. Ég fór með mömmu og ragúel í krabbann og manna hló alllllan tímann! Bara fyndið sko.... svo vann ég RIIIISSSA bangsa en gaf ragúel hann svo.... þó svo að mig langaði svo að eiga hann... crap that.
Svo um kvöldið bauð pabbi öllu liðinu út að borða á greifann og maður fékk sér nautakjöt og börnís... meeeeget gott..... mjög skrítið samt því við höfum aldrei farið saman út að borða fjölskyldan.... never.....
En svo er það bara vinna núna á eftir... vonandi verður lítið að gera... er svo löt í dag eitthvað. Spurning hvort fólk nenni að golfa í þessu veðri!:)
En kemur í ljós.
Ég ætla svo að enda þetta á mesta fríki sem ég hef nokkurntíman séð!
Eða öllu heldur framhaldsmynd mánaðarins...
Fyrri hluti:
Seinni hluti:
hehe djöfull er maður ljótur!!!
that's it
*karen*